21.04.1926
Efri deild: 56. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1046 í B-deild Alþingistíðinda. (562)

20. mál, bankavaxtabréf

Frsm. (Jóhann Jósefsson:

) Flm. þessarar deildar hefir athugað þann viðauka, er gerður var við frv. þetta í hv. Nd., og fellst á hann að öllu leyti. Þessi viðauki er í raun rjettri áframhald þess, sem til orða kom í þessari deild, að fela stjórninni að stuðla að sölu þeirra bankavaxtabrjefa, sem væntanlega verða gefin út samkv. þessum lögum. Með því eru brjefin gerð verðmeiri og lánskjör jafnframt aðgengilegri.