26.03.1926
Neðri deild: 41. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1048 í B-deild Alþingistíðinda. (568)

70. mál, veiting ríkisborgararéttar

Forsætisráðherra (JM):

Jeg get verið þakklátur háttv. allshn. þessa þings fyrir meðferð hennar á þessu máli nú; en jeg tek ekkert aftur af því, sem jeg sagði um allshn. þá, sem var á síðastliðnu þingi, því henni er jeg gramur. En það var önnur nefnd en sú, sem nú situr, og því kemur það, sem jeg sagði, þessari allshn. ekkert við. Allshn. í fyrra efndi ekki einu sinni loforð, sem gefið var um frekari athugun á umsóknum þeirra manna, sem hjer um ræðir. Og það vítti jeg við 1. umræðu þessa máls.