26.03.1926
Neðri deild: 41. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1050 í B-deild Alþingistíðinda. (572)

70. mál, veiting ríkisborgararéttar

Forsætisráðherra (JM):

Það er langt frá því, að jeg ásaki núverandi allshn., jafnvel þó að þar sjeu enn nokkrir hinir sömu menn og voru þar í fyrra. Jeg tel þeim sóma að því að hafa nú bætt ráð sitt, og get ekki annað en glaðst yfir því.