19.04.1926
Neðri deild: 57. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1071 í B-deild Alþingistíðinda. (628)
2. mál, fjáraukalög 1924
Frsm. (Jakob Möller):
Það eru aðeins nokkrar upphæðir á þskj. 367, sem nefndin leggur til, að bætt sje við. Tvær fyrstu brtt. eru um gjöld til póstafgreiðslumanna utan Reykjavíkur. Þau eru ákveðin í fjárlögunum aðeins sem áætlunarupphæð. Upphæðin getur farið eftir því, hvernig á er haldið. Það hefir verið siður að taka þessar upphæðir upp í fjáraukalög; það kom aðeins ekki til þess á síðustu þingum, því að engar umframgreiðslur hafa átt sjer stað síðan 1921.
Fjárveiting fyrir hinum 2 liðunum er í fjáraukalögum fyrir 1923, en hefir ekki komið til greiðslu fyr en 1924, svo heimildin var formlega úr gildi gengin. Því þótti nefndinni rjett að taka þetta upp.
Að öðru leyti er ekki mikið um frv. að segja. Að vísu hefði mátt fella burt 2 upphæðir. Í 3. gr. B-lið brunaábyrgðar- og sótaragjöld. Þetta eru lögboðin gjöld, sem strangt tekið er ekki ástæða til að taka upp í fjáraukalög.
Þá vil jeg vekja athygli á kostnaðinum við sambandslaganefndina. Nefndinni þótti sá kostnaður nokkuð mikill; fundur sambandslaganefndarinnar var haldinn heima og þessi upphæð er umfram föstu launin. Þá er 2. liður sömu greinar, 2000 kr. kostnaður við ríkisráð. Nefndin vildi gjarnan fá upplýsingar um þetta.