08.05.1926
Neðri deild: 74. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1124 í B-deild Alþingistíðinda. (707)

7. mál, fræðsla barna

Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Þessi breyting um að fræðslumálastjórn skipi form. nefnda er í góðum tilgangi gerð, eins og áður hefir verið gerð grein fyrir. Við frv. hafa enn ekki komið fram brtt. við þetta ákvæði, og hefir það þó gengið gegnum 3 umr. í báðum deildum. Það er því í meira lagi einkennilegt, að hv. 2. þm. Reykv. (JBald) vill nú á elleftu stundu láta taka frv. út af dagskrá til þess að flækja því enn einu sinni milli deilda. Og þar sem jeg álít ákvæði þetta til bóta, andmæli jeg því, að málið verði tafið af þessari ástæðu.