06.05.1926
Efri deild: 68. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1211 í B-deild Alþingistíðinda. (798)
16. mál, kosningar í málum sveita og kaupstaða
Ingibjörg H. Bjarnason:
Hæstv. atvrh. (MG) ljet þess getið, að það væri hart að láta ákvæði eins og þetta valda því, að málið yrði hrakið milli deilda, og tefja þannig þingstörfin og tefla frv. í hættu. Jeg verð að mótmæla því, að þetta sje hjegómamál. Hafa konur fengið kosningarrjett eða ekki? Ef þessari spurningu er svarað hreinskilnislega, þá verða þeir, sem vilja gera þetta að hjegómamáli, að játa það, að svo sje ekki. Jeg hika því ekki við að tefja fyrir þinginu vegna þessa máls, ef svo vill verkast, því jeg veit, að fjöldi kvenna utan Reykjavíkur er því fylgjandi, enda þótt þinginu hafi ekki, sökum staðhátta hjer, borist áskoranir frá þeim eins og konum hjer í Reykjavík, sem hafa nú látið vilja sinn ótvírætt í ljós. Jeg vil láta það sjást, að kvenkjósendum sje ætlað að sýna það í verki, að þeir sjeu albúnir að taka á sig þær skyldur, sem rjettinum fylgja, því rjettindin eru lítils virði, ef aldrei reynir á skyldurnar. Jeg hika því ekki við það að halda þessu fram, þó það tefji eitthvað þingið, og jafnvel þótt málið fari þá í sameinað þing.
Hv. 1. þm. Eyf. (EÁ) sagði, að áskoranir um þetta mál hefðu eingöngu komið úr Reykjavík. Við því er það að segja, að jeg hefi ekki gert neitt til þess að leita álits kvenna yfirleitt um þetta mál, nema hvers jeg hefi orðið vísari af samtali við konur hjer, sem hafa spurt mig, hvernig stæði á þessari óþörfu hlífð Alþingis í garð kvenna. En ef jeg hefði notað þingmannsrjettindi mín til þess að tala við kjósendur úti um land, þá mundi liggja hjer fyrir fjöldi áskorana frá ýmsum kvenfjelögum víðsvegar að.
Jeg vænti því, að hv. þdm. sjeu enn á sömu skoðun og áður um þetta rjettindamál kvenna og geri sjer ljóst, að kröfur þeirra í þessu efni eru annað og meira en aðeins goluþytur. Jeg ætla í því trausti að leggja þetta mál fyrir skilning og velvilja hv. deildarmanna og vænti þess, að þeir verði við þessari kröfu kvenþjóðarinnar á þeim sama grundvelli, sem þeir hafa áður ótilknúðir veitt konum rjettindin.