10.05.1926
Neðri deild: 75. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1226 í B-deild Alþingistíðinda. (813)
16. mál, kosningar í málum sveita og kaupstaða
Atvinnumálaráðherra (MG):
Út af brtt. meiri hluta allshn. á þskj. 521 vildi jeg mælast til þess við hv. deild, að hún samþykki frv. óbreytt eins og það nú liggur fyrir, því að annars er jeg hræddur um, að það dagi uppi eða verði felt. Og frá mínu sjónarmiði er sú breyting ekki svo mikils verð, að rjett sje að hrekja frv. milli deilda hennar vegna.
Þegar jeg setti þetta ákvæði inn í frv. í fyrsta, var það aðeins vegna þess, að þetta hafa verið og eru gildandi reglur, að konur megi skorast undan að taka þátt í sveitarstjórn. Jeg hjelt, að kvenfólkið vildi halda þessum rjettindum, en nú er komið í ljós, að það er því á móti skapi. Og jeg verð að meta frv. sjálft meira virði en aðeins þetta eina ákvæði.
Út af ummælum háttv. 2. þm. Reykv. (JBald) um það, að með frv. væri gengið á rjett kvenna, þá er það ekki rjett. Jeg hafði engar raddir heyrt um þessar kröfur, sem nú er verið að gera, þegar jeg lagði frv. fyrir þingið. Nú eru þær komnar fram, en jeg álít ekki rjett að fella frv. fyrir þetta atriði. Um frv. sjálft er lítill ágreiningur, nema um þetta.
Fyrri brtt. hv. 2. þm. Reykv. er gamall kunningi hjer á Alþingi, enda þótt aldurstakmarkið sje nú annað en verið hefir. Um þetta atriði get jeg vísað til þess, sem jeg hefi áður um það sagt. Seinni brtt. hv. þm. hefir ekki komið fram áður og engar raddir um það að stytta kjörtímabilið. Jeg veit ekki, hvort háttv. þm. hefir þarna nokkra menn að baki sjer, eða nokkuð annað en sína eigin skoðun. B.-liður till. leiðir af hinum og er sjálffallinn, ef hinn er feldur.
Jeg skal svo ekki orðlengja meira. um þetta, en óska þess eindregið, að hv. deild samþ. frv. óbreytt.