28.04.1926
Neðri deild: 64. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1250 í B-deild Alþingistíðinda. (835)

126. mál, verðtollur

Forseti (BSv):

Hjer er komin fram skrifleg brtt. frá hv. 2. þm. Reykv. (JBald), en hún er varatill. við brtt. sama hv. þm. á þskj. 444. En til þess að hún megi komast að, þarf afbrigði frá þingsköpum. Því spyr jeg hæstv. stjórn. hvort hún fyrir sitt leyti leyfi, að brtt. þessi megi komast að.