28.04.1926
Neðri deild: 64. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1250 í B-deild Alþingistíðinda. (837)

126. mál, verðtollur

Jón Baldvinsson:

Jeg hefi vitanlega ekkert á móti þessari beiðni hæstv. fjrh. (JÞ). En þetta hefir svo oft tíðkast áður, að leyft sje að greiða atkv. um skriflega brtt., auk þess sem þetta atriði er svo ljóst, að allir ættu að geta áttað sig á brtt.