23.04.1926
Neðri deild: 60. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1303 í B-deild Alþingistíðinda. (888)

82. mál, hlunnindi handa nýjum banka

Forseti (BSv):

Mjer hefir verið afhent rökstudd dagskrá frá hv. þm. Str. (TrÞ), og hafa hv. þm. heyrt hana, svo að jeg þarf ekki að lesa hana upp. Kemur hún til atkvæða og er nú þegar til umræðu.