25.03.1926
Neðri deild: 40. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 63 í B-deild Alþingistíðinda. (9)

1. mál, fjárlög 1927

Atvinnumálaráðherra (MG):

Jeg get ekki annað en gert fyrirspurn til hv. þm. Str. (TrÞ) um það, hvað hann hafi meint með ummælum sínum um stjórn mína á bjargráðasjóðnum. Vilji hann fá svar, verður hann að spyrja skýrt eða finna skýrt að.