21.03.1927
Efri deild: 33. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 704 í B-deild Alþingistíðinda. (1003)

58. mál, bankaábyrgð fyrir Landsbanka Íslands

Forsrh. og fjrh. (Jón Þorláksson):

Jeg hefi að svo stöddu ekki annað að segja út af þessu litla frv. en þakka þær góðu undirtektir, sem það fjekk við 2. umr. Sjerstaklega þakka jeg hv. 1. landsk. (JJ) fyrir það lið, sem hann ljeði frumvarpinu við atkvæðagreiðsluna, sem óneitanlega var vel gert af honum, eftir að hafa þó eytt svona löngu nál. og svona mörgum og löngum ræðum til þess að gera grein fyrir sínu atkvæði.