15.03.1927
Neðri deild: 30. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 78 í B-deild Alþingistíðinda. (126)
1. mál, sveitarstjórnarlög
Frsm. (Jörundur Brynjólfsson):
Jeg þarf ekki að hafa langt mál um frv. þetta. Eins og hv. deild er kunnugt, hefir Ed. haft það til meðferðar og gert á því smávægilegar breytingar frá því, sem það var lagt fyrir deildina. Allshn. hefir komið sjer saman um að leggja til, að frv. verði samþykt óbreytt.
Jeg skal taka það fram út af ákvæðum 3. gr. um breytingar á hreppaskipuninni, að nefndin telur, að þær geti því aðeins farið fram, að hlutaðeigandi hreppsnefndir sjeu því samþykkar. Mjer þætti vænt um að heyra, hvaða skilning hæstv. atvrh. (MG) leggur í þessa grein, og hvort hann álítur ekki, að það þurfi samþykki allra sveitarstjórna, sem hlut eiga að máli, til þess að slíkar breytingar geti fram farið.