11.05.1927
Neðri deild: 72. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1660 í B-deild Alþingistíðinda. (1288)

21. mál, fjárlög 1928

1288Forseti (BSv):

Jeg mun ekki taka aftur þær brtt., er jeg hefi borið fram. Hinsvegar tek jeg upp aftur brtt. 550,1, frá hv. þm. V.-Húnv. (ÞórJ, að vísu í þeim einum tilgangi að fá hana felda. (ÞórJ: Er það ekki of seint? Jeg tók hana aftur í dag). Hv. þm. V.-Húnv. lýsti því í dag, að hann mundi taka aftur till. sínar, og endurtók þá yfirlýsingu nú, með því skilyrði, að aðrir þm. gerðu hið sama, en þeir hafa ekki gert það allir, — og undir öllum kringumstæðum tek jeg tillöguna upp. (MT: Því hefir aldrei verið lýst úr forsetastóli, að till. væri tekin aftur).