04.04.1927
Efri deild: 44. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1888 í B-deild Alþingistíðinda. (1414)

115. mál, bankavaxtabréf

Forsrh. og fjrh. (Jón Þorláksson):

Þetta frv. er borið fram af hv. fjhn. Nd., og var tilefni þess skýrsla frá stjórn Landsbankans viðvíkjandi lánveitingum úr 5. og 6. flokki veðdeildarinnar og ófullnægðri eftirspurn eftir lánum, svo og frá stjórn ræktunarsjóðsins. Tel jeg ekki ástæðu til að fjölyrða um það, en óska, að því verði vísað til fjhn.umr. lokinni.