07.04.1927
Neðri deild: 49. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1979 í B-deild Alþingistíðinda. (1512)

112. mál, Mosfellsheiðarland

Flm. (Ólafur Thors):

Jeg hefi flutt frv. þetta eftir ósk hreppsnefndar Mosfellshrepps. Það hefir verið leitað umsagnar ábúandans, sjera Hálfdans Helgasonar, um sölu þessa, og er svar hans prentað með frv. þessu. Leggur hann eindregið með sölu á landinu. Jeg sje ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta, en ef einhver kynni að vilja fá að vita skoðun mína á því, hvort jeg telji eins nauðsynlegt fyrir hreppinn að eignast þetta land eins og hreppsnefndin telur, þá er hún sú, að jeg tel það tvímælalaust rjett, er hreppsnefndin segir.