29.04.1927
Neðri deild: 62. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1993 í B-deild Alþingistíðinda. (1519)

112. mál, Mosfellsheiðarland

Klemens Jónsson:

Jeg vil vekja athygli hæstv. forseta á því, að fjhn. hefir ekki getað haldið fund nú í 14 daga og fyrir liggja mörg mál, sem nefndin hefir ekki enn getað tekið ákvörðun um. Vil jeg því leyfa mjer að vekja athygli hæstv. forseta á því, að nefndin þarf nauðsynlega að fá tækifæri til að athuga þessi mál. (PO: Hún verður að fara að hafa fundi á morgnana). Þá hefir hún aðra fundi.