05.05.1927
Neðri deild: 67. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2007 í B-deild Alþingistíðinda. (1538)

112. mál, Mosfellsheiðarland

Tryggvi Þórhallsson:

Jeg vil taka undir það með hv. þm. Borgf. (PO), að málinu verði frestað og tekið fyrst fyrir 1. málið á dagskránni. Jeg segi fyrir mig, að það getur haft áhrif á afstöðu mína til þessa máls, hvort jörð þessi á að verða prestssetur aftur eða ekki. Einmitt þetta skiftir miklu máli um það, hvort menn vilja selja. Jeg óska því eindregið, að hæstv. forseti verði við þessu.