18.05.1927
Efri deild: 77. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2043 í B-deild Alþingistíðinda. (1572)

112. mál, Mosfellsheiðarland

Björn Kristjánsson:

Jeg sje enga ástæðu til þess að verða við þeim tilmælum hv. 1. landsk. (JJ) að koma nú fram með skriflega brtt. við frv. þetta. Mjer sýnist, að komi nú fram brtt. við frv., þá sje það fallið vegna þess að komið er að þingslitum, og þá má eins fella það hreinlega með atkvgr. nú þegar, ef það á að falla.