19.05.1927
Efri deild: 79. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2043 í B-deild Alþingistíðinda. (1577)

112. mál, Mosfellsheiðarland

Jónas Jónsson:

Jeg hefi skilið hæstv. atvrh. svo, að hann mundi sjá sjer fært að taka tillit til þeirra aths., sem komu fram hjer í gær. Þær voru um það að setja inn í sölusamninginn ákvæði um það, að eignin megi ekki ganga til einstakra manna, og vænti jeg, að hann, ef hann telur sjer það fært, bregðist ekki trausti deildarmanna í því efni.