01.04.1927
Efri deild: 42. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2297 í B-deild Alþingistíðinda. (1779)

19. mál, varðskip ríkisins

Atv.- og dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Jeg vil aðeins mæla á móti hinni skriflegu brtt. frá hv. 5., landsk. Jeg sje enga ástæðu til þess að samþ. hana. Jeg býst ekki við, að kjör þessara starfsmanna verði neitt öðruvísi, þó að þessi brtt. verði feld og brtt. nefndarinnar samþ. eins og hún liggur fyrir.