14.05.1927
Efri deild: 74. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2441 í B-deild Alþingistíðinda. (1838)

19. mál, varðskip ríkisins

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Háttv. Nd. hefir endursent þetta frv. þessari hv. deild, og get jeg lýst yfir því fyrir hönd allshn., sem hafði málið hjer til athugunar í upphafi, að hún hefir athugað breytingar þær, sem gerðar voru á frv. í hv. Nd. Sjer nefndin ekki ástæðu til að gera þær að ágreiningsefni og leggur því til, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir.