17.05.1927
Neðri deild: 77. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 3605 í B-deild Alþingistíðinda. (2213)

2. mál, stjórnarskipunarlög

Ásgeir Ásgeirsson:

Jeg vil leyfa mjer að stinga upp á, að gefið verði fundarhlje, áður en málið kemur til umr. Er viðfeldnara, að hv. nefnd fái tóm til að líta á það áður. En jeg sje ekki annað en það gildi einu fyrir hæstv. forsrh., hvort hlje er gefið strax á undan umr. eða á undan atkvgr. Nefndinni er það hinsvegar betra.