10.03.1927
Efri deild: 24. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 93 í C-deild Alþingistíðinda. (2284)
75. mál, ölvun embættismanna, skipstjóra o.fl
Jón Baldvinsson:
Það er náttúrlega ekki glæsilegt, að slíkt frv. sem þetta skuli þurfa að koma fram, en jeg held nú samt, að það hafi oft og tíðum gerst þau atvik hjer á landi, sem sýna, að það mætti gjarnan liggja einhverjar refsingar við þeim atvikum, sem hjer er talað um; en það eiga ekki allir óskilið mál um þetta. Það er líklegt, að menn vilji helst vernda landið fyrir þeim mönnum, sem óreglusamir eru, og trúað er fyrir lífi og limum annara manna, t. d. er það talið óhjákvæmilegt, að bifreiðarstjórar mættu ekki vera druknir að starfi sínu, því að það getur riðið á lífi fjölda margra. Þessir menn verða að vera með fullu ráði og rænu, til þess að geta ráðið við þau tæki, sem þeim er ætlað að stjórna; það var ekki nóg að banna þeim að vera ölvuðum við þetta starf, heldur þótti sjálfsagt, að stjórnin gæfi út sjerstaka reglugerð, sem trygði þeim, að þeir fengju ákveðinn hvíldartíma í sólarhring, svo að ofþreyta gæti ekki valdið því, að þeir gætu ekki haft fulla stjórn á sínu starfi. Þetta sýnir, að það er talið óhjákvæmilegt, að löggjöfin grípi inn í ýmsum atvinnugreinum, svo að menn hagi sjer sómasamlega, en það skal játað, að það hefir mjög mismunandi þýðingu, hvort embættismenn eru druknir, eftir því, hvaða starfi þeir gegna. Það er t. d. um lækna, að það er hörmulegt, ef þeir eru þannig á sig komnir, þegar þeir eiga að hjálpa mönnum, sem eru milli heims og helju og þurfa þeirra hjálpar.
Hæstv. forsrh. (JÞ) þótti alt of langt gengið í því, að gera menn misjafna fyrir lögunum með þessu, og veit jeg ekki, við hvað hæstv. ráðh. (JÞ) hefir átt með því, kannske við það, eins og sagt hefir verið áður, að það geti verið mismunandi brýn ástæða til að setja skorður við því, að menn sjeu druknir að sínu starfi, en jeg vona, að frv. fái að ganga til nefndar og fái þá að taka þeim breytingum, sem ástæða kynni að þykja til, að þingið geri. Jeg mun greiða atkvæði með því til nefndar, því að jeg tel alveg rjett, að því verði vísað þangað.