19.04.1927
Neðri deild: 55. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 201 í C-deild Alþingistíðinda. (2377)

32. mál, kosningar til Alþingis

Hjeðinn Valdimarsson:

Jeg hygg, að það sje venja, að forseti geri minni hl. nefnda aðvart, áður en mál koma fyrir til umr. Þetta hefir ekki verið gert við mig.