19.04.1927
Neðri deild: 55. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 201 í C-deild Alþingistíðinda. (2378)

32. mál, kosningar til Alþingis

Forseti (BSv):

Hv. frsm. minni hl. (HjV) hefir haft nægan tíma til þess að koma fram með nál. og brtt., og satt að segja hefir það dregist of lengi. En það mætti ef til vill hliðra þannig til í þetta skifti, að taka málið út af dagskrá nú, og taka það svo á dagskrá á morgun, ef hv. þm. (HjV) treystist til að koma með nál. sitt og brtt. fyrir næsta fund.