10.02.1927
Efri deild: 2. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 22 í B-deild Alþingistíðinda. (24)
Kosning fastanefnda
Jón Baldvinsson:
Mjer skilst, að það sje skýlaust tekið fram í 16. gr. þingskapanna, að sami maður megi ekki vera í fleiri en tveimur fastanefndum. Þetta hefir áður komið fyrir, á þinginu 1917, og þá fjell úrskurður forseta á þá leið, að enginn maður mætti sitja í nema tveimur fastanefndum. Hjer er því farið í bága við bæði forsetaúrskurð og bein fyrirmæli þingskapanna.