30.03.1927
Neðri deild: 42. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 336 í C-deild Alþingistíðinda. (2497)

11. mál, útrýming fjárkláða

Frsm. meiri hl. (Hákon Kristófersson):

Jeg leyfi mjer að mótmæla þessum tilmælum. Þau eru ekki á neinum rökum reist. Það er ekkert að setja út á þá niðurröðun, sem nú er á dagskránni, og því rjett, að frv. okkar gangi fram á undan hinu. Þó að einhverjir úr bændahjeruðunum styðji stjfrv., sannar það ekki rjettmæti þess og er ekki minni heimska fyrir því.