22.02.1927
Efri deild: 11. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 189 í B-deild Alþingistíðinda. (260)

16. mál, ríkisborgararéttur

Atv.- og dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Þetta litla frv. hefir átt mjög greiðan gang gegnum neðri deild. Býst jeg því ekki við miklum umræðum um það hjer.

Í neðri deild var það ekki sett í nefnd, og sje jeg ekki frekar þörf á að gera það hjer, en mun þó ekki hafa neitt á móti því, ef þess verður óskað. Annars er í greinargerðinni gerð grein fyrir ástæðum þeim, sem liggja til grundvallar fyrir því, og hefi jeg engu að bæta við það, sem þar stendur, og óska aðeins, að málinu verði vísað til 2. umr.