18.05.1927
Efri deild: 78. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 626 í C-deild Alþingistíðinda. (2634)

86. mál, nýbýli

Frsm. (Ingvar Pálmason):

Jeg þarf ekki að hafa langa framsögu fyrir hönd landbn. Eins og sjest á þskj. 623, leggur nefndin til, að þessu máli verði vísað frá með rökstuddri dagskrá. Er það í tilefni af því, að þingið hefir nú skipað milliþinganefnd í landbúnaðarmálum, og lítur því landbn. þannig á, að ekki sje ástæða til að láta þetta mál ganga lengra á þessu þingi, heldur megi vísa því frá með rökstuddri dagskrá, til þess að milliþinganefndin taki það ásamt öðrum málum til athugunar.