03.03.1927
Efri deild: 18. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 194 í B-deild Alþingistíðinda. (272)

5. mál, iðja og iðnaður

Atv.- og dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Jeg stend aðeins upp til þess að láta í ljós þakklæti mitt til hv. allshn. fyrir meðferð hennar á frv. Hún hefir eiginlega ekkert haft að athuga við frv., því að hinar fáu brtt. hennar eru á þá leið, að þær raska ekki að neinu leyti efni frv. Sje jeg því enga ástæðu til að gera neina þeirra sjerstaklega að umtalsefni.