12.03.1927
Efri deild: 26. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 198 í B-deild Alþingistíðinda. (278)
5. mál, iðja og iðnaður
Jóhannes Jóhannesson:
Eins og hv. þdm. muna, þá var útbýtt á fundi þeim, er frv. þetta var síðast á dagskrá, mörgum brtt. Frsm. nefndarinnar, háttv. þm. Vestm. (JJós), var þá veikur og því fjarverandi, og var málið því tekið af dagskrá. Háttv. frsm. hefir ekki komið á nefndarfund síðan og nefndin því ekki tekið afstöðu til brtt. Þess vegna eru það tilmæli mín til hæstv. forseta, að hann taki málið enn af dagskrá og láti það bíða þangað til nefndin hefir haldið fund um málið og tekið afstöðu til brtt.