09.05.1927
Neðri deild: 70. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 781 í C-deild Alþingistíðinda. (2781)

64. mál, forkaupsréttur kaupstaða og kauptúna á hafnarmannvirkjum

Frsm. meiri hl. (Árni Jónsson):

Við 2. umr. þessa máls kom hv. þm. Mýr. fram með ýmsar viturlegar athugasemdir við frv. þetta. Samkv. bendingu hans hefir því meiri hl. allshn. borið fram tvær brtt. á þskj. 535. Þær eru formlegs eðlis, og þarf ekkert um þær að segja; þær eru sjálfsagðar, og býst jeg því við, að þær verði samþyktar.