30.03.1927
Neðri deild: 42. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 844 í C-deild Alþingistíðinda. (2820)

8. mál, samskólar Reykjavíkur

Frsm. meiri hl. (Ásgeir Ásgeirsson):

Það eru fáir á fundi nú, og af því að jeg vildi óska þess eins og aðrir, að umr. yrði bráðlega lokið, þá vil jeg meðal annars verða við þeirri ósk hv. 4. þm. Reykv. (HjV) að taka þessa brtt. mína aftur núna, og mun hún þá koma til atkv. við 3. umr. Og þar sem jeg fresta till. til 3. umr., þá mun jeg fresta þeim aths., sem jeg mundi vilja gera í tilefni af því, sem sagt hefir verið um hana.