11.03.1927
Neðri deild: 27. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1164 í C-deild Alþingistíðinda. (2984)
80. mál, stjórnarskipunarlög
Tryggvi Þórhallsson:
Jeg leyfi mjer sem annar skrifari deildarinnar að staðfesta það, sem hv. þm. A.-Sk. (ÞorlJ) hefir sagt um tölu fundarmanna í gær, þegar mál það, sem hjer er um að ræða, kom til atkvæða. Jeg aðgætti, að 15 voru í deildinni, þegar atkvæðagreiðsla hófst, en þegar hæstv. forsrh. ljet á sjer skilja óánægju yfir atkvæðagreiðslunni, taldi jeg aftur, og höfðu þá 2 eða 3 bæst við. Það er því vafalaust, að meira en helmingur viðstaddra fundarmanna hefir greitt atkvæði. — Jeg hefi flett upp í Alþt. frá 1923, af því að þau voru hjer við hendina, og þar stendur, í D., dálki 446, að till. um að skipa vatnamálanefnd hafi verið samþykt með 14 shlj. atkv. Eftir skilningi hæstv. forsrh. ætti alt að vera ólöglegt, sem gert hefir verið á grundvelli þeirrar nefndarskipunar. Þá stendur einnig í C., dálki 1072, að máli hafi verið vísað til 2. umr. með 14 shlj. atkv.