09.02.1927
Sameinað þing: 1. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 8 í B-deild Alþingistíðinda. (3)

Konungsboðskapur

Stóð þá upp Jóhannes Jóhannesson, þm. Seyðf., og mælti:

Lengi lifi konungur vor, Kristján hinn tíundi!

og tóku þingmenn undir þau orð með níföldu húrrahrópi.

Forsætisráðherra kvaddi elsta þingmanninn, Björn Kristjánsson, 1. þm. G.-K., til að gegna forsetastörfum þar til er kosinn væri forseti sameinaðs þings.

Aldursforseti gekk þá til forsetastóls og tók við fundarstjórn.