12.04.1927
Efri deild: 51. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 220 í B-deild Alþingistíðinda. (306)

5. mál, iðja og iðnaður

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Hv. Nd. hefir gert tvær örlitlar breytingar á þessu frv., við 18. gr., en nefndinni þykir ekki svo miklu máli skifta um þessar breytingar, að hún vilji gera ágreining út úr þeim, og leggur því til, að frv. verði samþykt eins og það nú liggur fyrir.