23.02.1927
Efri deild: 12. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1399 í C-deild Alþingistíðinda. (3125)

35. mál, einkasala á saltfisk

Forsrh. og fjrh. (Jón Þorláksson):

Það er ekki meining mín að gefa á nokkurn hátt í skyn, að atvrh. mundi ekki vilja gefa þm. upplýsingar, nema fram kæmi formlegar fyrirspurnir. Jeg vænti, að hv. þm. sjeu mjer sammála um, að hann hefir einmitt verið mjög greiðugur á að gefa ýmsar upplýsingar, en það getur vitanlega tekið dálítinn tíma að taka þær saman.