09.03.1927
Efri deild: 23. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 48 í D-deild Alþingistíðinda. (3180)
70. mál, rannsókn á akvegarstæði
Atv.- og dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):
Jeg dró það ekkert í efa, að hv. 5. landsk. (JBald) vildi flytja till. um fje til þessa vegar. Hann er jafnan ör á landsfje. En þar sem hann var að barma sjer yfir því, að ekki væri hægt að flytja till. um fjárframlag til þessa vegar vegna dráttar á kostnaðaráætlunum, þá vildi jeg sýna honum, að svo er ekki. En það lá ekki í orðum mínum, að jeg ætlaði að flytja till. Jeg hefi þegar útbúið fjárlagafrv., og þar er mitt svar.