29.03.1927
Neðri deild: 41. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 178 í D-deild Alþingistíðinda. (3219)

100. mál, landsstjórn

Tryggvi Þórhallsson:

Jeg ætla aðeins að minna hæstv. ráðh. (JÞ) á það, að við Framsóknarmenn greiðum atkvæði með þeim tillögum, sem við flytjum, hvort sem við erum aðalflutningsmenn þeirra eða ekki. Við hugsum málin vandlega áður en við berum fram tillögur um þau og stöndum svo við tillögur okkar, hvað sem hv. íhaldsmönnum þóknast að gera við sínar.