28.03.1927
Efri deild: 38. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 260 í D-deild Alþingistíðinda. (3319)

101. mál, styrkur handa stúdentaefnum frá gagnfræðaskólanum á Akureyri

Forsrh. og fjrh. (Jón Þorláksson):

Þessi þáltill. fer fram á útgjöld úr ríkissjóði á þessu ári, sem ekki eru heimiluð í fjárlögum. Án þess jeg vilji beinast gegn till., vil jeg að gefnu tilefni taka það fram, að með því að búast má við, að tekjur ríkissjóðs á yfirstandandi ári verði rýrar, ber nauðsyn til að fara gætilega í öll fjárútlát. Jeg áskil því fjármálaráðuneytinu rjett til þess að hafa hóf á fjárupphæðinni.