10.02.1927
Neðri deild: 2. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 30 í B-deild Alþingistíðinda. (35)

Sætaskipun

Björn Líndal:

Þetta mál hefir alls ekki verið tekið á dagskrá í dag og ekki leyft að taka það fyrir. Auk þess er það of seint fram komið. Mun jeg því sitja í mínu gamla sæti á þessu þingi, þótt önnur ákvörðun verði tekin hjer í deildinni í dag, því allar slíkar ákvarðanir verð jeg að telja ólöglegar.