07.05.1927
Efri deild: 68. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 578 í D-deild Alþingistíðinda. (3581)

192. mál, umboðsmaður sáttasemjara á Austurfjörðum

Forsrh. og fjrh. (Jón Þorláksson):

Jeg vil aðeins vekja athygli hv. 5. landsk. (JBald) á því, að þar sem hæstv. atvrh. (MG) heyrði ekki þessi ummæli, verður ekki komist hjá milliburði um þau. En annars skal það látið óátalið af mjer, að þingskrifararnir sjeu teknir gildari sem vitni en jeg.