09.05.1927
Efri deild: 69. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 617 í D-deild Alþingistíðinda. (3601)

128. mál, sparnaðarnefndir

Guðmundur Ólafsson:

*) Jeg vil aðeins benda á, að jeg held, að fyrv. forsrh., Jón Magnússon, hafi ekki talið óhjákvæmilegt að bera þetta mál undir þingið. Jeg man ekki betur en að hann segði oftar en einu sinni, að ekki hefði þurft að leita samþykkis þess. Hæstv. forsrh. (JÞ) hefir líka gleymt að skýra frá, hvers vegna ekki var reynt að koma á sparnaðinum eftir þáltill. um stjórnarráðsskrif stofurnar.

*) Ræðuhandr. óyfirlesið.