18.05.1927
Efri deild: 78. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 674 í D-deild Alþingistíðinda. (3653)
54. mál, milliþinganefnd um hag bátaútvegsins
Jón Baldvinsson:
Jeg vildi mælast til þess við hæstv. forseta, að hann tæki á dagskrá á væntanlegum fundi, sem verður haldinn í deildinni til þess að ráða til lykta a. m. k. einu máli, sem enn er óútrætt — þáltill. um skipun nefndar til þess að rannsaka hag bátaútvegsins og gera till. til tryggingar honum. Þessi till. á þskj. 413 var afgr. frá sjútvn. og gæti hæglega orðið afgr. frá þinginu. Ef gerð verður breyting á henni hjer, má láta hana fara í sameinað þing, en þar er eftir að halda fund hvort sem er.
Af því að till. þessi er mikilsverð og snertir annan aðalatvinnuveg landsins, álít jeg ekki rjett af þinginu að láta undir höfuð leggjast að afgreiða hana.