14.03.1927
Efri deild: 27. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 249 í B-deild Alþingistíðinda. (382)

66. mál, varnir gegn útbreiðslu næmra sjúkdóma

Atv.- og dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Það tekur því ekki að fara að prenta upp lögin frá 1907 vegna þessarar litlu breytingar, því að þau eru löng. Annars er aths. hv. 5. landsk. (JBald) rjett, og ætti að mega lagfæra umrætt atriði með skriflegri brtt.