26.02.1927
Neðri deild: 16. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 327 í B-deild Alþingistíðinda. (545)

43. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús

Pjetur Ottesen:

Jeg vil aðeins benda á, að við atkvæðagreiðsluna í fyrra var frv. þetta samþykt hjer í deildinni með 1 atkv. mun, en þá voru 5 þingmenn fjarstaddir. Er því ekki hægt að segja, hvernig farið hefði, ef allir hefðu verið á fundi. Mjer finst því sjálfsagt, að málið sje athugað í nefnd.