06.05.1927
Neðri deild: 68. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 353 í B-deild Alþingistíðinda. (645)
123. mál, veðmálastarfsemi í sambandi við kappreiðar
Hjeðinn Valdimarsson:
Jeg legg ekki með mínu atkv. lið þessu frv., að löggjöfin fari að vernda fjárhættuspil við veðreiðar. Undanfarið hafa verið mikil brögð að fjárhættuspilamensku í sambandi við kappreiðar, eins og kunnugt er, — í hvert sinn svo skiftir mörgum þúsundum og jafnvel tugum þúsunda. Má geta nærri, að þegar farið er að löghelga spilavíti, þá muni ekki úr því draga.