13.05.1927
Efri deild: 73. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 354 í B-deild Alþingistíðinda. (652)
123. mál, veðmálastarfsemi í sambandi við kappreiðar
Frsm. (Guðmundur Ólafsson):
Eins og sjest á nál., hefir allshn. athugað þetta frv. og leggur til, að það sje samþykt óbreytt. þetta frv. er að áliti nefndarinnar ekkert stórmál, en hún felst á, að rjett sje að leyfa hestamannafjelaginu „Fáki“ þessa veðmálastarfsemi. í greinargerð frv. í hv. Nd. er ítarleg grein gerð fyrir því, af hverju fjelagið fer fram á þetta, og læt jeg mjer nægja að vísa til þess. Fjelagið hefir átt við fjárskort að búa, en hyggur, að það geti með þessu móti veitt svo há verðlaun, að það fái fleiri góða hesta til kappreiða sinna en ella. — Hv. Nd. hefir bætt því við, að 10% af hagnaði fjelagsins af þessari starfsemi skuli renna til reiðvegarins hjer við bæinn. Allir, sem eitthvað þekkja til hjer í kring, vita nauðsynina á þessum reiðvegi og að honum sje haldið við. Allshn. álítur því þetta ákvæði til bóta. — í stuttu máli er það tillaga allshn., að frv. sje samþykt.