23.03.1927
Neðri deild: 37. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 506 í B-deild Alþingistíðinda. (905)
93. mál, greiðsla verkkaups
Flm. (Hjeðinn Valdimarsson):
Með lögum 1902 voru gerðar endurbætur á því, hvern veg greiðsla verkkaups færi fram. Skyldi jafnan greiða í peningum. í seinni tíð hefir þótt á því bera, að þetta ákvæði nái ekki tilgangi sínum. Í Reykjavík er að vísu kaup yfirleitt greitt í peningum og skuldajöfnuður tíðkast ekki, og sama mun vera að segja um flesta stærri kaupstaðina. En í smærri kauptúnum og veiðistöðvum kemur fyrir, og er meira að segja venjulegt sumstaðar, að skrifa kaupið inn í reikning hlutaðeiganda upp á síðari úttekt. Hafa sumir mist kaup sitt með öllu, ef verslunin hefir orðið gjaldþrota. — Sama er að segja um síldarvinnu. Þar er venjulega kaupið gert upp eftir á, og ef illa gengur útgerðin, fæst stundum hluti af kaupinu, stundum ekkert, hjá sumum útgerðarmönnum.
En það er hinsvegar augljóst, að verkafólk, sem lifir á kaupgjaldi sínu einu saman, verður að hafa greiðan aðgang að fá það greitt. Því er það, að við hv. þm. V.-Ísf. (ÁÁ) flytjum þetta frv. og förum fram á, að kaup sje yfirleitt borgað vikulega, eins og á sjer stað nú í Reykjavík. Þetta fólk verður að hafa peningana milli handa jafnóðum og það vinnur fyrir þeim, til þess að geta haft sitt daglegt brauð. Það er einsætt, að alt öðru máli er að gegna um kaupavinnu og ársvistir heldur en daglaunavinnu, og því er undantekning gerð um slíka vinnu, þar sem menn búa á heimili verkþega og fá fæði og húsnæði sem hluta af kaupi sínu.
Um fólk, sem vinnur ákvæðisvinnu, t. d. við fiskiþvott, er eins ástatt og daglaunamenn, og ber því að setja sömu skilyrði þar um vikulegar útborganir.
Æskilegt væri að fara lengra en hjer er gert og setja önnur ákvæði til frekari tryggingar. T. d. að gera allan málarekstur út af kaupgjaldi einfaldari og ódýrari en nú. í Englandi t. d. er því svo hagað um slíkan málarekstur, að menn geta á fáum dögum fengið kaup úrskurðað greitt sjer, án þess að fara til málfærslumanns.
Þetta mál varðar fjölda fólks í þessu landi og er því mikils virði. Jeg vil því vona, að hv. deild taki vel í það og því verði vísað til 2. umr. og allshn.